Gleraugnabúðin í Mjódd

Opnunartímar

Mán - fös 10:00 - 18:00

Staðsetning

Álfabakka 14a, 109 Reykjavík

Gleraugnabúðin í Mjódd býður vönduð gleraugu á hagstæðu verði. Hjá okkur færðu faglega og persónulega þjónustu. Við aðstoðum þig frá upphafi til enda. Gleraugnabúðin í Mjódd annast sjónmælingar og aðstoðar þig við val á umgjörðum.

Hjá Gleraugnabúðinni í Mjódd getur þú valið úr vönduðu úrvali af gleraugum fyrir alla aldurshópa og öll helstu verkefni:

 

Við erum öflug liðsheild, með áratuga reynslu af sölu gleraugna, sjónmælinga og slípun glerja.  Við gerum okkur grein fyrir hversu mikilvægt er að fá góðar ráðleggingar frá fagfólki þegar kemur að gleraugnakaupum.  Það getur skipt sköpum að rétt gler séu valin og þau slípuð í hentugar umgjarðir á sem nákvæmastan hátt, til að gleraugun nýtist sem best.  Við leggjum áherslu á skjóta en jafnframt vandaða afgreiðslu og eigum stóran hluta glerja til á lager.
Starfsmenn Gleraugnabúðarinnar í Mjódd eru:
Jóhannes Ingimundarson, sjónfræðingur/Optometrist
Sigurjóna Ástvaldsdóttir, verslunarstjóri
Guðmunda Guðlaugsdóttir
Kristbjörg Ólafsdóttir
Unnur Hjartardóttir

Önnur fyrirtæki