
Frumherji
Opnunartímar
Mán - Fös | 08:00 - 16:00 |
Staðsetning
Þarabakka 3, 109 Reykjavík
Frumherji er leiðandi á sviði skoðana og prófana á Íslandi.
Frumherji er með starfsemi um land allt og þjónustar viðskiptavini
sína á 35 starfsstöðvum á landinu, auk þjónustu færanlegrar skoðunarstöðvar sem heimsækir 9 staði á landinu. Hjá Frumherja starfa rúmlega 100 manns á 9 mismunandi sviðum. Frumherji kappkostar að veita starfsfólki sínu góðan aðbúnað og setur öryggi þess og viðskiptavina sinna í öndvegi. Hjá Frumherja er til staðar öflugt gæðastjórnunarkerfi sem er vottað samkvæmt alþjóðlegum faggildingarstöðlum.
Höfuðstöðvar Frumherja eru að Þarabakka 3 í Reykjavík.
Í dag er starfsemi Frumherja skipt í eftirfarandi svið:
– Bifreiðaskoðanir (ökutækjaskoðanir)
Ökupróf (framkvæmd ökuprófa á landinu öllu)
– Fasteignaskoðanir (ástandsskoðanir fasteigna)
– Gæðastjórnunarkerfi (skoðun á gæðastjórnunarkerfum í byggingariðnaði)
– Byggingareftirlit (Yfirferð hönnunargagna og úttektir fyrir sveitarfélög)
– Rafmagnsskoðanir (rafskoðanir)
– Skipaskoðanir (skoðanir á skipum og bátum)
– Orkumælar (rekstur og umsýsla mæla fyrir veitufyrirtæki)
Prófunarstofan (prófanir og löggilding mælitækja)