Bakarameistarinn

Bakarameistarinn ehf Mjódd

Opnunartímar

Mán - fös 07:30 - 16:30
Laugardagur 08:00 - 16:30
Sun 08:00 - 16:00

Staðsetning

Álfabakka 12, 109 Reykjavík

Um Bakarameistarann

Bakarameistarinn hefur verið í fararbroddi í sinni grein allt frá því hjónin Sigþór Sigurjónsson bakarameistari og Sigrún Stefánsdóttir stofnuðu fyrirtækið í janúar árið 1977. Opnun Bakarameistarans í Suðurveri olli svo að segja straumhvörfum á sínu sviði, enda höfðu Reykvíkingar ekki áður kynnst viðlíka þjónustu og vöruúrvali eins og Bakarameistarinn varð strax kunnur fyrir. Markmið fyrirtækisins voru snemma mjög skýr; að vera í fararbroddi með nýjungar og öfluga vöruþróun, bjóða upp á mikið vöruúrval, hraða og örugga þjónustu, góða fagmenn í bakstrinum og síðast en ekki síst að nota einungis gæðahráefni til að búa til úrvalsvöru. Þessum atriðum hefur ávallt verið haldið til haga í rekstrinum.

Bakarameistarinn starfrækir nú níu kaffihús víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Þótt starfsfólki okkar hafi fjölgað úr 20 árið 1977 í rösklega 170 manns hafa markmið Bakarameistarans ekkert breyst og eru alltaf jafn skýr; við þjónum þér!

 

Úrval Bakarameistarans

Í Bakarameistaranum er boðið upp á fjölbreytt úrval af smurðu brauði, s.s. rúnstykki með skinku og osti, kjötlokur, aspasstykki, beikonbræðinga, núðlur, pasta og súpur. Í hádeginu er alltaf séð til þess að smurbarinn sé sneisafullur af hollum og góðum skyndibita sem viðskiptavinir geta gætt sér á í notalegu umhverfi í dagsins önn. Veisluþjónusta fyrirtækisins fer einnig sístækkandi og býður upp á einkar hentugar lausnir fyrir stóra sem smáa hópa við öll tækifæri.
Kaffi Bakarameistarans er malað úr úrvals Chaqwa kaffibaunum og eru cappucino og café latte vinsælustu tegundirnar. Meðlætið á kaffihúsunum streymir úr ofninum allan liðlangan daginn; heitar ostaslaufur, skinkuhorn, vínarbrauð og croissant. Þá er tertuborðið ekki síður girnilegt og fjölbreytt og minnir á hversu gott er að geta gripið með sér tertu í vinnuna, í afmælið eða á fundinn, án þess að þurfa að panta kræsingarnar með einhverjum fyrirvara.

 

Önnur fyrirtæki