Nettó var fyrsta lágvöruverslunin til að opna netverslun á Íslandi í september 2017. Hægt er að panta matvöru á netinu í 14 verslunum Nettó um landið á sama verði og í verslunum á netto.is
Opnunartímar
Mán - Sun | Opið allan sólarhringinn |
Staðsetning
Þönglabakka 1, 109 Reykjavík
Vöruúrvalið í Nettó verslunum er mikið og verðlag að fullu samkeppnishæft við aðrar lágvöruverðsverslanir. Nettó flytur inn fjöldann allan af eigin vörumerkjum svo sem Änglamark, Coop, Xtra, Maku og Sistema svo eitthvað sé nefnt. Vöruúrval samanstendur af matvöru sem og sérvöru.
Nettó er lágvöruverðsverslun með gæða vörur á góðu verði.
Nettó er í eigu Samkaupa hf. Fyrsta Nettó verslunin opnaði á Akureyri árið 1989 en í dag eru þær 17 talsins, sex á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. á Grandanum, í Mjódd, í Lágmúla, í Hafnarfirði, Búðakór og við Salaveg í Kópavogi. Auk þess eru 2 Nettó verslanir á Akureyri, í Borgarnesi, á Selfossi, 2 í Reykjanesbæ, Grindavík, á Höfn í Hornafirði, Ísafirði, Egilsstöðum og Húsavík.
Opið er allan sólarhringinn í Mjódd.